

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
11. nóvember 2008
Framleiðsla Alcoa Fjarðaáls óbreytt
Alcoa Inc. greindi frá því í gær að álframleiðsla fyrirtækisins á heimsvísu verði dregin saman um 350.000 tonn á ári. Þessi samdráttur mun ekki hafa áhrif á framleiðslu hjá Alcoa Fjarðaáli í Reyðarfirði sem er nýjasta og fullkomnasta álverið í eigu fyrirtækisins. Í október var greint frá lokun álvers Alcoa í Rockdale í Texas. Samtals mun fyrirtækið því draga úr framleiðslu um 15% á seinni hluta ársins, eða um 615.000 tonn.
Gripið er til þessara aðgerða vegna minnkandi eftirspurnar eftir áli og erfiðum efnahagsaðstæðum í heiminum. Þær fylgja í kjölfar annarra sparnaðaraðgerða sem fyrirtækið hefur gripið til. Dregið verður úr framleiðslu hjá fjölda álvera Alcoa um allan heim í stað þess að loka einstökum álverum. Þannig er vonast til að áhrifin á þau samfélög sem álverin starfa í, verði sem minnst, auk þess sem komið er í veg fyrir kostnað sem fylgir lokun og endurræsingu álvera. Dregið verður úr súrálsframleiðslu í samræmi við samdrátt í álframleiðslu. „Álbirgðir í heiminum hafa aukist að undanförnu og álverð hefur lækkað meira á styttri tíma en dæmi eru um áður,“ sagði Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri Alcoa Inc. og framkvæmdastjóri frummálmvinnslu. „Til lengri tíma litið teljum við að eftirspurn eftir áli muni aukast í heiminum. Það er hins vegar nauðsynlegt að bregðast við núverandi aðstæðum með því að draga úr framleiðslu og með öðrum sparnaðaraðgerðum.„ Strax verður hafist handa við að hrinda sparnaðaraðgerðum í framkvæmd. Árleg framleiðsla Alcoa á áli mun eftir þennan samdrátt nema um 3,5 milljónum tonna og ónýtt framleiðslugeta verður um ein milljón tonna.
|
 |


|