Alcoa á Íslandi
Samskipti og samráð 
Samskipti og samráð

Alcoa Fjarðaál leitast við að kynna áætlanir sínar og starfsemi þannig að samfélagið sé meðvitað um áherslur fyrirtækisins og framtíðarþróun.  Þetta er gert með ýmsum hætti; fréttabréfum, í gegnum heimasíðuna og með virkri upplýsingamiðlun til fjölmiðla, með opnum íbúafundum og öðrum skipulögðum viðburðum.  Enn mikilvægara er þó að Alcoa Fjarðaál leitar markvisst eftir samráði við samfélagið um áætlanir sínar og starfsemi.  Þannig getur fyrirtækið tekið tillit til þarfa og skoðana samfélagsins í ákvörðunum og vinnu.  Samráðið veitir fyrirtækinu ennfremur jákvætt aðhald í aðgerðum.
 
Samráðshópur Alcoa og Landsvirkjunar
Alcoa Fjarðaál hefur sjálfbærni að leiðarljósi við uppbyggingu og starfsemi fyrirtækisins.  Þar sem fyrirtækið er nýtt og hefur ekki enn tekið til starfa er tækifærið til að fylgjast með og mæla raunveruleg áhrif starfseminnar á nærsamfélagið ómetanlegt.  Með þetta í huga leitaði Alcoa Fjarðaál samstarfs við Landsvirkjun um sameiginlegt sjálfbærniverkefni þar sem mæld yrðu áhrifin af þeim samtengdu verkefnum sem fyrirtækin standa fyrir á Austurlandi.  Mælingarnar ná til áhrifa á umhverfið, samfélagið og efnahagslífið.
 
Leitað var til hóps hagsmunaaðila eftir aðstoð við að skilgreina þau atriði sem talið er að skipti máli að fylgjast með í nánustu framtíð og til lengri tíma.  Í framhaldi af þeirri skilgreiningu vann hópurinn jafnframt að því að hanna og forgangsraða mælikvarða og vísa sem mældir verða til að fylgjast með áhrifum verkefnanna. 
 
Hópurinn vann saman á tímabilinu júní 2004 til febrúar 2005 og verður niðurstaða vinnunnar birt á heimasíðunni um leið og skýrslugerð er lokið.  Upplýsingar um verkefnið, hópinn, framkvæmd og niðurstöður mælinga eru einnig til staðar hér á síðunni eða verða færðar inn leið og þær liggja fyrir.
 
Samráðshópur Alcoa Fjarðaáls og Fjarðabyggðar
Alcoa Fjarðaál átti ennfremur frumkvæði að stofnun samráðshóps innan Fjarðabyggðar.  Í þessum hópi sitja fulltrúar bæjarfélagsins og fyrirtækjanna sem bera ábyrgð á vinnu við uppbyggingu álversins, þjónustustofnana á vegum ríkis og sveitarfélaga á svæðinu, atvinnuveitenda, félagasamtaka og íbúa. Hlutverk hópsins er að miðla upplýsingum um þá stöðu mála og þá þróunarvinnu sem er í gangi vegna uppbyggingar á svæðinu, ásamt því að grípa inn í þróun sem virðist stefna í neikvæða átt fyrir bæjarfélagið og íbúa þess.


Frá fundi hópsins á Reyðarfirði

Samráðshópur Landsvirkjunar og Alcoa


Landsvirkjun og Alcoa vinna að sameiginlegu verkefni þar sem mæld eru áhrifin af þeim samtengdu verkefnum sem fyrirtækin standa fyrir á Austurlandi. Leituðu fyrirtækin til hóps hagsmunaaðila til þess að aðstoða við skilgreiningu vísa.
meira


Alcoa Fjarðaál sækist eftir góðri samvinnu við íbúa í Fjarðabyggð

Samráðshópur Fjarðabyggðar og Alcoa Fjarðaáls


Í þessum hópi sitja fulltrúar bæjarfélagsins og fyrirtækjanna sem bera ábyrgð á vinnu við uppbyggingu álversins, þjónustustofnana á vegum ríkis og sveitarfélaga á svæðinu, atvinnuveitenda, félagasamtaka og íbúa. Skoðið lista yfir þá sem eiga sæti í hópnum.
skoða lista

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina